Um vefinn
Hugmyndavinna: Bergsteinn Jónsson frá UNICEF, Elísabet Gísladóttir frá umboðsmanni barna og Margrét Júlía Rafnsdóttir frá Barnaheillum.
Höfundur texta, verkefna og kennsluhugmynda: Margrét Júlía Rafnsdóttir.
Ritstjórn: Aldís Yngvadóttir, Bergsteinn Jónsson, Elísabet Gísladóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir.
Verkefnisstjórn: Barnaheill; Margrét Júlía Rafnsdóttir.
Fagleg ráðgjöf: Aldís Yngvadóttir og Hildigunnur Halldórsdóttir.
Hönnun, forritun og umsjón með gerð vefjarins: Athygli ehf.; Edda Langworth.
Forritun á gagnvirkum verkefnum: Guðný Þorsteinsdóttir.
Teikningar: Þórarinn Leifsson.
Hljóðvinnsla: Ingimar OddssonUpplestur: Tinna Lind Gunnarsdóttir og Ingimar Oddsson
Barnaheill
Barnaheill eru frjáls félagasamtök, sem vinna að réttindum og velferð barna hér á landi og erlendis og hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem leiðarljós í starfi sínu. Samtökin eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children, sem voru stofnuð í Bretlandi árið 1919. Í alþjóðasamtökunum eru 28 landsfélög sem starfa í 120 löndum víða um heim. Barnaheill vinna verkefni bæði á Íslandi og erlendis. Helstu málaflokkar sem samtökin vinna að eru réttindi barna, barnavernd, heilbrigðismál, barátta gegn ofbeldi á börnum og menntun barna í stríðshrjáðum löndum.
UNICEF Ísland
Íslenska UNICEF landsnefndin er sjálfseignarstofnun sem vinnur að fjáröflun fyrir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, ásamt því að standa að fræðslu um starfsemi UNICEF og réttindi barna. Í 60 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í nær 160 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi.
Umboðsmaður barna
Hlutverk umboðsmanns barna er skilgreint í lögum um embættið nr. 83/1994. Hlutverk umboðsmanns barna er að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi þeirra. Umboðsmanni barna er ætlað að hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu um málefni barna, koma með tillögur til úrbóta á réttarreglum og fyrirmælum stjórnvalda, er varða börn sérstaklega. Þá er honum ætlað að stuðla að því að virtir séu þeir þjóðréttarsamningar sem snerta réttindi og velferð barna og Ísland er aðili að.
Námsgagnastofnun
Hlutverk Námsgagnastofnunar er að leggja grunnskólum til námsgögn í samræmi við meginmarkmið náms og kennslu á grunnskólastigi samkvæmt grunnskólalögum og aðalnámskrá. Stofnunin ber ábyrgð á gerð, útgáfu, framleiðslu og dreifingu námsgagna, sem hún framleiðir, í samræmi við ákvæði laga um námsgögn. Námsgagnastofnun gefur út margs konar námsgögn fyrir grunnskóla, kennslubækur, vinnubækur, kennsluleiðbeiningar, hljóðbækur, fræðslumyndir, handbækur og vefefni. Fjölmargir gagnvirkir vefir eru opnir öllum landsmönnum.