Tengsl við námskrár og lög

Í 42.–45. grein Barnasáttmálans er kveðið á um mikilvægi þess að kynna börnum og fullorðnum þau réttindi sem sáttmálinn kveður á um. Árið 2005 samþykktu öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, að Íslandi meðtöldu, að efla kennslu um mannaréttindi á grunn- og framhaldsskólastigi, þar á meðal fræðslu um alþjóðlega sáttmála eins og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í markmiðsgreinum laga um leikskóla grunnskóla og framhaldsskóla, sem samþykkt voru á árinu 2008, kemur fram að markmið skólanna sé að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi. Vefur þessi er viðleitni til að uppfylla slík markmið.

Efnið á vefnum samrýmist vel aðalnámskrám á öllum skólastigum. Í námskrám allra skólastiga er lögð áhersla á jafnræði allra barna, að skólinn skuli stuðla að alhliða þroska, umhyggju og vernd, ásamt því að gefa börnum tækifæri til að tjá skoðanir sínar. Slíkt er í samræmi við meginmarkmið Barnasáttmálans.

Námsgreininni lífsleikni er öðrum fremur ætlað að takast á við þessi viðfangsefni í menntun barna, en margir þættir tengjast þó öðrum námsgreinum, s.s.samfélagsgreinum, kristinfræði, trúarbragðafræði og siðfræði, náttúrufræði og umhverfismennt.

Leikskóli
Í aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á jafnræði allra barna, heilsu þeirra og vernd, mikilvægi þess að börn fái að tjá sig og að þeim sé kennt að bera virðingu fyrir öðru fólki, óháð trú og lífsviðhorfun, kynþætti, uppruna, menningu eða atgervi. Námssvið leikskóla eru áhersluþættir í leikskólauppeldi. Námssviðin eru hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi, menning og samfélag. Námssviðin skarast og þau eru samofin undirstöðuþáttum leikskólastarfs: leik, daglegri umönnun og almennri lífsleikni. Efnið á www.barnasattmáli.is samrýmist vel þessum undirstöðuþáttum leikskólastarfsins.

Grunnskóli
Í aðalnámskrá grunnskóla – almennum hluta er lögð áhersla á jafnræði allra nemenda, að skólinn sé fyrir öll börn og skuli stuðla að alhliða þroska hvers og eins og mikilvægi þess að börn fái að tjá skoðanir sínar. Lögð er áhersla á að frumábyrgð á uppeldi og menntun sé hjá foreldrum en skólinn skuli, í samvinnu við heimilin, búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi. Ef litið er til einstakra námsgreina grunnskólans tengist efnið á www.barnasattmáli.is sérstaklega markmiðum lífsleikni og samfélagsgreina. Efnið er þó hægt að samþætta mörgum öðrum námsgreinum.

Framhaldsskóli
Í aðalnámskrá framhaldsskóla – almennum hluta er lögð áhersla á að framhaldsskólinn skuli sinna öllum nemendum óháð því hvernig undirbúningi þeirra úr grunnskóla er háttað. Skólum beri að gæta að jafnrétti nemenda óháð kyni, uppruna eða öðru sem einkennir þá og bjóða upp á nám við hæfi hvers og eins. Framhaldsskólinn skuli stuðla að alhliða þroska nemenda ásamt því að undirbúa þá undir áframhaldandi nám og störf í þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Námsvefurinn www.barnasattmali.is fellur vel að markmiðum framhaldsskólans og þá sérstaklega að markmiðum lífsleikni, félagsfræði, sögu og náttúrufræði.

Blöðrur