Kennsluhugmyndir

Grundvallarforsenda þess að börn fái notið þeirra réttinda sem þeim eru tryggð í Barnasáttmálanum er að þau sjálf, sem og aðrir, þekki inntak hans. Af þeirri ástæðu er sérstaklega kveðið á um það í Barnasáttmálanum að kynna skuli efni hans ítarlega fyrir börnum sem og fullorðnum. Góð þekking á sáttmálanum veitir stjórnvöldum virkt aðhald og stuðlar að því að réttindi barna séu ávallt virt. Mikilvægt er að unnið sé með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindi barna í skólum á Íslandi. Af þeirri ástæðu tóku umboðsmaður barna, UNICEF og Barnaheill – Save the Children á íslandi sig saman við gerð þessa kennsluvefjar með aðstoð Námsgagnastofnunar.

Í nemendahluta vefjarins eru gagnvirkar æfingar og verkefni sem eiga að auka skilning nemenda á Barnasáttmálanum og réttindum barna og jafnframt auka færni þeirra til að takast á við málefni í því samhengi.

Nemendavefurinn er ætlaður öllum börnum. Vefurinn er tvískiptur og hentar yngra stigið börnum á aldrinum 5- 9 ára. Eldra stigið hentar börnum frá 10- 14 ára. Á yngra stigi eru fimm verkefni. Eldra stig er leiðangur um Réttindaeyjuna, þar sem nemendur leysa verkefni á samtals 16 reitum með hjálp sögumanna sem nefnast Réttur og Réttlát.

Efnið skiptist í fimm meginviðfangsefni eða þemu. Þau eru eftirfarandi:

  • Réttindi og samábyrgð
  • Barnasáttmálinn og aðrar skuldbindingar
  • Barnið sjálft, fjölskylda og þjóðerni
  • Menntun
  • Öryggi og vernd

Verkefnin standa sjálfstæð, en hægt að vinna hvert á eftir öðru eða samþætta öðru efni í skólastarfi.  Í nóvember 2009 voru fyrstu verkefnin sett inn á vefinn, þ.e. verkefni fyrir yngsta stig grunnskóla.

Hérna má finna kennsluhugmyndir fyrir yngra stig

Blöðrur