Kennsluleiðbeiningar
- þekki barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og efni hans.
- viti að börn eiga sjálfstæð réttindi.
- átti sig á að börn þurfa sérstaka vernd og umönnun umfram þá sem fullorðnir eru.
- viti að börn eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós og hafa áhrif.
- skilji að Barnasáttmálinn kveður á um jafnræði allra barna.
Vefurinn www.barnasattmali.is er tvískiptur. Annars vegar er um að ræða vefsvæði fyrir kennara og foreldra þar sem fjallað er um Barnasáttmálann og réttindi barna. Þar eru jafnframt kennsluhugmyndir. Hins vegar er vefsvæði fyrir krakka og unglinga, þar sem efni Barnasáttmálans er skýrt í máli og myndum ásamt verkefnum sem hæfa mismunandi aldri og þroska barna og unglinga. Börn geta því einnig notað vefinn utan skólatíma án leiðsagnar. Efnið er hægt að nýta eitt og sér eða sem hluta af annarri mannréttindafræðslu.