Hugtakalisti
Alsherjarþing Sameinuðu þjóðanna: Samkoma fulltrúa allra meðlima Sameinuðu þjóðanna sem hittast a.m.k. árlega og kjósa um ýmis mál. Þingið getur ályktað í tillöguformi um hvers kyns alþjóðamál.
Flóttamaður: Sá sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum félagsmálaflokkum eða stjórnmálaskoðana, og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa sér í nyt vernd heimalands síns, eða sá sem er ríkisfangslaus, og er utan þess lands, þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur, vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki, vegna slíks ótta, hverfa aftur þangað.
Foreldri: Foreldri getur verið kynforeldri, stjúpforeldri eða fósturforeldri.
Hælisleitandi: Sá sem sækist eftir hæli sem flóttamaður er skilgreindur sem hælisleitandi.
Hvíld Hér er átt við grundvallarþörf fyrir líkamlega og andlega hvíld og svefn.
Leikur: Athafnir barna sem fullorðið fólk stjórnar ekki og þurfa ekki endilega að falla undir ákveðnar reglur. Börn finna alltaf leiðir og aðferðir til að leika sér, jafnvel við erfiðar aðstæður. Í heimi fullorðinna er oft litið á leikinn sem munað, en leikurinn er nauðsynlegur þáttur í andlegum og líkamlegum þroska barnsins.
Málsmeðferð:
Ofbeldi: Ofbeldi getur verið líkamlegt, andlegt og kynferðislegt. Refsingar og einelti er líka ofbeldi. Líkamlegt ofbeldi er þegar einstaklingur er meiddur viljandi. Dæmi um andlegt ofbeldi er þegar talað er niður til einhvers eða sett út á orð, athafnir eða útlit. Kynferðislegt ofbeldi getur verið allt frá kynferðislegu- eða klámfengnu tali, myndbirtingum, snertingum og til nauðgunar.
Ríki: Afmarkað landsvæði með íbúum sem lúta ríkisstjórn sem fer raunverulega með völd og er viðurkennt sem sjálfstætt af öðrum ríkjum.
Ríkisfang: Ríkisborgararéttur. Mismunandi er eftir löndum hvernig lög um ríkisborgararétt eru.
Skemmtanir Allt það sem hægt er að fást við að eigin vali sér til ánægju (þ.m.t. íþróttir, skapandi listir, handíðir, verkefni á sviði vísinda, landbúnaðar eða tækni)
Stjórnvald:
Tómstundir Að hafa tíma og frelsi til að gera það sem börnin langar til.
Þjóðaréttur:
Ættleiðing: Ættleiðing er þegar fullorðnir taka að sér hlutverk foreldris barns sem er ekki líffræðilegt afkvæmi þeirra. Þetta er löglegt ferli sem felur í sér að barnið verður hjá þeim sem ættleiða til frambúðar og nýtur allra sömu réttinda eins og um líffræðilega foreldra væri. Dómsmálaráðherra veitir þetta leyfi. Ekki má veita leyfi nema að viðkomandi barnaverndarnefnd hafi sýnt fram á að það sé barninu fyrir bestu að verða ættleitt af þeim sem þess óska.